Opnun heimasíðu

2009-02-05

Núna á nýbyrjuðu ári höfum við tekið nýtt skref í þjónustu við viðskiptavini okkar með opnun heimasíðu.

Til að byrja með verður síðan frekar einföld í sniðum en það er von okkar að með tímanum getum við gert hana betri og fullkomnari. Það er hinsvegar gríðarlega mikil vinna við að halda úti heimasíðu með öllum vörum okkar sem skipta þúsundum. Sérstaklega á tímum eins og núna þegar verð geta breyst nánast daglega og fyrirvaralaust.

Fyrst um sinn verðum við að láta nægja að vísa í heimasíður umboðsaðila en okkar stærstu birgjar eru með mjög góðar síður með vöruupplýsingum og verðum. Við höfum opnað póstfangið verslun(hja)hljomsyn þar sem hægt er að senda inn pantanir á vörum eða hafa samband við okkur. Sé varan ekki til á lager hjá okkur verður hún það að jafnaði daginn eftir með þeim fyrirvara þó að hún sé til á lager hjá umboðsaðila.

 
Verslunin Hljómsýn - Stillholti 23 - 300 Akranesi - Sími: 430-2500 - Fax: 430-2501 - Kt. 430603-4180