| Forsíða |
|
|
|
Verslunin Hljómsýn er alhliða raftækjaverslun á Akranesi sem selur flest þau tæki til heimilisins sem á annað borð ganga fyrir rafmagni. Allt frá vasaljósum og nefháraklippum til þvottavéla, eldavéla og sjónvarpa af öllum stærðum.Myndavélar eigum við fyrir lærða og leika, allt frá litlum smámyndavélum í vandaðri græjur með skiptanlegri linsu.Við erum einnig með mikið úrval af geisladiskum og DVD myndum auk tölvuleikja fyrir Playstation og PC tölvur.Tölvudeildin okkar er ekki sú stærsta á landinu enda er Akranes ekki stærsti bær landsins. Þar kennir þó ýmisa grasa og við eigum á lager flest allar snúrur og kapla sem þarf í þessum geira. Einnig erum við með prenthylki, prentara og fjölnotatæki, lyklaborð, mýs, tölvuhátalara, forrit, töskur, kortalesara, hreinsiefni og margt fleira.Við erum í samstarfi við flesta umboðsaðila heimilisraftækja í höfuðborginni og þá má finna undir "samstarfsaðilar" í valmyndinni til vinstri. Þaðan er greið leið að heimasíðum þeirra.Sendu okkur póst á "verslun hjá hljomsyn.is" ef þú vilt panta einhverja vöru sem þú sérð þar og við verðum með hana í búðinni næsta virka dag ef hún er til hjá innflytjanda. ************************************************Við eigum nokkur hundruð titla af DVD myndum til á lager. Nokkurra þeirra nýustu er getið í "Nýtt DVD" í valmyndinn efst til vinstri. Skoðaðu fleiri tilboð sem eru í gangi með því að smella á "Tilboð" í aðalvalmyndinn efst til vinstri. |